![]() |
Mynd: Aðalsteinn Atli Guðmundsson
|
Síðastur var Sterasníkir,
strekktur mjög á taug
stífbónaður endalaust
á milli kvenna flaug
Skömm var ætíð dvölin
því skætt hann bjó við mein:
skapið ofsafengið
en getan ekki nein.
f
Vefur um knúz og jafnrétti
![]() |
Mynd: Aðalsteinn Atli Guðmundsson
|
Femínisti er manneskja sem hefur áttað sig á því að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað til að breyta því.“
Tilgangur þessarar vefsíðu er að vera vettvangur þeirra sem vilja reynast góðir femínistar í ofangreindum skilningi. Greinar, pistlar, ábendingar og hugleiðingar sem birtast hér á Knúzinu eiga það því sameiginlegt að vera í femínískum anda. Von okkar er að skrifin geti stuðlað að breytingum í átt til jafnréttis.
*Knúz*

