f

„Alnetið þarf knúz miklu oftar. Annars breytist það í vígvöll.“ G.H. í kommenti 30. júlí 2011


fimmtudagur, 26. janúar 2012

Kvenlegt sjónarhorn á franskri kvikmyndahátíð 2012

Fréttatilkynning


Alliance Française í Reykjavík, Sendiráð Frakklands á Íslandi og Græna ljósið kynna franska kvikmyndahátíð, sem verður haldin í 12. sinn dagana 26. janúar til 9. febrúar í Háskólabíói og í Borgarbíói á Akureyri 17. til 20. febrúar.
Frönsk kvikmyndahátíð er annar stærsti kvikmyndaviðburður Íslands, næst á eftir Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Árlega sækja um 10.000 gestir frönsku kvikmyndahátíðina, sem er fyrsti stóri menningarviðburður ársins í Reykjavík. Það er Alliance française í Reykjavík sem skipuleggur hátíðina, í samvinnu við Græna ljósið, Institut français og Sendiráð Frakklands á Íslandi. Eins og verið hefur er fjölbreytnin í fyrirrúmi á Franskri kvikmyndahátið og það breytist ekki í ár. Sýndar verða ýmsar tegundir gæðakvikmynda frá Frakklandi, auk mynda frá frönskumælandi svæðum utan Frakklands, s.s. Québec og Tchad. Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á kvikmyndir eftir kvenleikstjóra.
Þær tíu kvikmyndir sem sýndar verða á næstu hátíð, sem stendur frá 27. janúar til 9. febrúar, 2012 eru eftirfarandi.

Opnunarmynd hátíðarinnar er The Artist (Listamaðurinn) eftir Michel Hazanavicius.
Listamaðurinn (The Artist) 2011 Frönsk kvikmynd/ Tegund: dramatísk gamanmynd/ Lengd: 100 mín / Leikstjórn: Michel Hazanavicius / Ađalhlutverk: Jean Dujardin, Bérénice Bejo, John Goodman.

Þessi mynd kom öllum að óvörum árið 2011 og er talin líkleg til að hreppa Óskarsverðlaunin 2012. Nú á tímum bíómynda í þrívídd, kemur „Listamaðurinn“ verulega á óvart: þetta er svart-hvít, þögul kvikmynd. Mjög djörf hugmynd sem gefur gersamlega slegið í gegn.

Þar er sögð saga George Valentin, sem var stjarna þöglu kvikmyndanna í Hollywood 1927. Þegar talmyndirnar komu til sögunnar, hrapaði stjarna hans mjög hratt. Á sama tíma reis stjarna Peppy Miller hátt í talmyndum, en hún hafði fram að því verið aukaleikari í mörgum þöglum myndum. Þessi kvikmynd fjallar um líf þeirra beggja og hvernig þau skarast.

Aðalleikari myndarinnar, Jean Dujardin, var valinn besti leikarinn í aðalhlutverki á Kvikmyndahátíðinni í Cannes 2011. Gagnrýnendur í New York völdu nýlega Listamanninn sem bestu kvikmynd ársins og hún fékk einnig flestar tilnefningar – eða fimm talsins – hjá Independent spirit awards.

***
Stríðsyfirlýsing (La guerre est déclarée) 2011 Frönsk kvikmynd/ Tegund: Drama / Lengd: 100 mín / Leikstjórn: Valérie Donzelli / Ađalhlutverk: Valérie Donzelli, Jérémie Elkaïm

Kvikmyndin La Guerre est déclarée (Stríðsyfirlýsing) verður einnig sýnd á sérstökum viðburði á hátíðinni. Þetta er annar stórviðburður á Franskri kvikmyndahátíð 2012!

Myndin er byggð á sönnum atburðum úr lífi leikstjórans sjálfs. Þetta er saga ungrar ástar, Rómeó og Júlíu, sem eru dregin harkalega út úr sínu hamingjuríka og áhyggjulausa lífi og neyðast til að horfast í augu við það óvænta í lífinu. Veikindi sonar þeirra neyðir þau inn í heim hinna fullorðnu. En þrátt fyrir þessar raunir gera erfiðleikarnir þeim kleift að blómstra, þau finna styrk og hugrekki hjá sjálfum sér, sem þau vissu ekki að þau ættu til.

Þetta er sú mynd sem fékk bestu viðtökurnar á Kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí s.l. – það var klappað í yfir 20 mínútur ! Hún var valin mynd ársins í Frakklandi.

***

Áhersla á franska kvenleikstjóra:
Að þessu sinni eru fjórar myndir eftir konur á hátíðinni 2012. Hvers vegna? Vegna þess að kvenlegt sjónarhorn þeirra hefur blásið nýju lífi kvikmyndir Frakka og annarra frönskumælandi þjóða. Eða eins og stórleikkonan Catherine Deneuve orðaði það, „Sjónarhorn kvenna er ekki eins biturt, og þær eiga auðveldara með og finnst ekki eins vandræðalegt að mynda það sem þær hafa skrifað. Þær berjast meira fyrir því að fá leikarana og leikkonurnar til að kalla fram það sem þær eru með í huga“.
Auk Stríðsyfirlýsingarinnar, eru konur leikstjórar eftirfarandi þriggja kvikmynda:

Barnsfaðirinn (Le Père de mes enfants) 2009 Frönsk kvikmynd/ Tegund: Drama / Lengd: 110 mín / Leikstjórn: Mia Hansen-Løve / Ađalhlutverk: Chiara Caselli, Louis-Do de Lencquesaing, Alice de Lencquesaing

Segir sögu manns, sem hefur átt mjög náðugt líf, en það snöggbreytist við fyrstu mistök hans í starfi.

Myndin hlaut sérstök verðlaun, „Un certain regard“ (Ákveðin sýn) á Kvikmyndahátínni í Cannes 2009.

***

Þrauki einn fylgja hinir (Qu‘un seul tienne et les autres suivront) 2011 Frönsk kvikmynd/ Tegund: Drama / Lengd: 119 mín / Leikstjórn: Léa Fehner / Ađalhlutverk: Farida Rahouadj, Reda Kateb, Pauline Etienne

Þessi fyrsta mynd leikstjórans Léa Fehner í fullri lengd fékk frábæra dóma í Frakklandi og annars staðar. Hér eru sagðar þrjár sögur úr heimsóknartíma fangelsis: ung kona er ástfangin af fanga; móðir sem krefst þess að fá að hitta morðingja sonar síns; maður er tilbúinn að sitja inni fyrir annan í skiptum fyrir peninga.

***

Saman er einum of (Ensemble c‘est trop) 2009 Frönsk kvikmynd/ Tegund: gamanmynd / Lengd: 96 mín / Leikstjórn: Léa Fazer/ Ađalhlutverk: Nathalie Baye, Pierre Arditi, Aïssa Maïga

Clémentine og Sébastien eru ungir foreldrar sem sjá ekki fram úr verkefnum sínum. Þeim gengur illa að finna jafnvægi á milli foreldrahlutverksins og starfsframans. Dag einn flytur móðir Sébastiens, Marie-France, inn til þeirra. Hún hefur komist að því að maðurinn hennar heldur fram hjá henni og að hjákonan er barnshafandi. Frábær mynd með stjörnuleikurum.

Fulla dagskrá má sjá á vef Alliance française

Twitter Delicious Facebook Digg Stumbleupon Favorites More

 
Design by Free WordPress Themes | Bloggerized by Lasantha - Premium Blogger Themes | Design Blog, Make Online Money