f

„Alnetið þarf knúz miklu oftar. Annars breytist það í vígvöll.“ G.H. í kommenti 30. júlí 2011


Oj!


Knúzverjar furða sig á auglýsingaherferð Íslensk ameríska, sem hamrar á klisjum og staðalmyndum um unglingsstúlkur og konur á blæðingum:

Í umfjöllun DV um málið segir:

"Á umslag sendingarinnar er ritað: „Passið ykkur, ég er að breytast í dramadrottningu.“ Umslagið er skreytt með ljósmyndum af unglingsstúlku og, að því er virðist, leikrænni tjáningu hennar á geðsveiflum táningsstúlkna á blæðingum. Þá er stálinu stappað í foreldra og þeim sagt að „slaka bara á“ þótt dóttirin breytist í dramadrottningu."

OJ!!
Mynd fengin af láni af heimasíðu Íslensk ameríska:  www.isam.is




-----------------


Knúzverjar furða sig á barnatertum á tilboði í Korninu: Aríel, Tímon, Púmba, Bieberinn, Yoda og ..... kona í bikiníi í ögrandi stellingu?

OJ!!

Mynd: Þorlákur Lúðvíksson














 -----------------

Knúzverjar eru stoltir af Hildi Lilliendahl fyrir að benda á kvenfyrirlitningu netverja í myndaalbúminu sínu "Karlar sem hata konur" á Facebook.

OJ!!

-----------------


Knúzverjar furða sig á auglýsingamyndum á forsíðu vefsins Sportlíf.is. Þar eru öfgakennd dæmi um hlutgervingu bæði karl- og kvenlíkamans, en í mismunandi útfærslum — á meðan heljarmenni sjást hnykla vöðva minna kvenkyns fyrirsæturnar meira á undirfataauglýsingar (tja, eða bara klámmyndir) en nokkuð tengt heilsu eða líkamsrækt.

Oj!







- - - - - - - - 


Knúz mælir með því að allir kynni sér þessa grein á Cracked, sem fjallar um 8 furðukynferðislegar vörur sem maður tryði ekki að eru ætlaðar börnum



Oj!

Twitter Delicious Facebook Digg Stumbleupon Favorites More

 
Design by Free WordPress Themes | Bloggerized by Lasantha - Premium Blogger Themes | Design Blog, Make Online Money